Hér má sjá dagskrána fyrir laugardaginn. Við erum að springa úr spenningi að verja deginum með ykkur fögru konur!
8:30 Húsið opnar - kaffi og með því.
9:30 Ráðstefnan sett
9:45 Speaker: Ingrid
10:45 Speaker: Bettý
11:30 Q&A - spurt og svarað
12:00 Hádegishlé
13:00 Dagskrá hefst að nýju
13:15 Speaker: Erla
14:15 Speaker: Linda
15:00 Kaffihlé
15:30 Q&A - spurt og svarað
16:00 Spjall og happdrætti
16:30 Ráðstefnuslit.
Ef þú hefur áhuga á að leggja hönd á plóginn, þ.e. vera í þjónustu á ráðstefnunni, þætti okkur vænt um að fá tölvupóst (netfang okkar er kvennaradstefna@gmail.com) eða símtal frá þér í síma 783-4585. Margar hendur vinna létt verk!
Við viljum líka minna á, að þó aðgangur að ráðstefnunni sé ókeypis, þá verður hún ekki að veruleika án tilkostnaðar og mikillar vinnu. Því verður pottur látinn ganga og við höfum auk þess aðgang að posa. Það er mikilvægt að byggja upp ráðstefnuna og festa hana í sessi til framtíðar.
Hlökkum til að sjá ykkur á laugardagsmorgun!
Undirbúningsnefndin
Máttur kvenna, kvennaráðstefna
7.maí, 2016.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli
Ath: Aðeins meðlimir bloggsins geta birt ummæli.