03 maí 2016

Nú er alveg að koma að þessu!

Hér má sjá dagskrána fyrir laugardaginn. Við erum að springa úr spenningi að verja deginum með ykkur fögru konur!

 8:30 Húsið opnar - kaffi og með því.
 9:30 Ráðstefnan sett
 9:45 Speaker: Ingrid
10:45 Speaker: Bettý
11:30 Q&A - spurt og svarað
12:00 Hádegishlé
13:00 Dagskrá hefst að nýju
13:15 Speaker: Erla
14:15 Speaker: Linda
15:00 Kaffihlé
15:30 Q&A - spurt og svarað
16:00 Spjall og happdrætti
16:30 Ráðstefnuslit.


Ef þú hefur áhuga á að leggja hönd á plóginn, þ.e. vera í þjónustu á ráðstefnunni, þætti okkur vænt um að fá tölvupóst (netfang okkar er kvennaradstefna@gmail.com) eða símtal frá þér í síma 783-4585. Margar hendur vinna létt verk!

Við viljum líka minna á, að þó aðgangur að ráðstefnunni sé ókeypis, þá verður hún ekki að veruleika án tilkostnaðar og mikillar vinnu. Því verður pottur látinn ganga og við höfum auk þess aðgang að posa. Það er mikilvægt að byggja upp ráðstefnuna og festa hana í sessi til framtíðar.

Hlökkum til að sjá ykkur á laugardagsmorgun!

Undirbúningsnefndin
Máttur kvenna, kvennaráðstefna
7.maí, 2016.



09 apríl 2016

Máttur kvenna verður 7.maí næstkomandi!

Jæja kæru konur, þá er að koma að þessari árlegu gleði. Við í undirbúningshópnum vonum að þið séuð jafn spenntar og við! 

Tólfsporaráðstefnan Máttur Kvenna er samvinnuverkefni nokkurra stórkostlegra stelpukvenna, og er sniðið eftir bandarískri fyrirmynd. Hugmyndin er að eiga saman einn dag á ári, sem kostar ekkert, svo allar konur geti komið og verið með, óháð efnahag og félagslegri stöðu, og geti notið samvista við aðrar tólfsporakonur og samhæft reynslu, styrk og vonir, eignast nýjar vinkonur, og styrkt vináttubönd við þær sem fyrir eru í vinavendinum!

Við sem stöndum að þessu erum allar tólfsporakonur í hinum ýmsu samtökum, þó flestar okkar eigi rætur í AA-samtökin. En við urðum fljótt varar við að konur úr öðrum samtökum voru mjög áhugasamar, og því tókum við þá stefnu að hafa ráðstefnuna opna konum úr öllum tólfsporasamtökum og sjáum ekki eftir því! Við höfum séð vinskap blómstra og dafna, og verða öðrum til góðs af því við þekkjum orðið konur í öðrum samtökum, sem geta hjálpað þegar aðrir geta ekki. 

Fyrirkomulagið er nokkuð einfalt, konur skrá sig með því að senda tölvupóst á netfangið kvennaradstefna@gmail.com  og gefa upp nafn, símanúmer, netfang og hve mörg sæti viðkomandi þarf. Gott er að fá nöfn þeirra sem skráðar eru af öðrum. Einnig viljum við gjarnan fá batadag/edrúdag, því við reiknum svo út samanlagðan batatíma ráðstefnukvenna áður en dagurinn er búinn. Það var sannkallað gæsahúðarmóment í fyrra þegar samanlagður batatími var gefinn upp fyrir fullan sal af konum!

Við vonum að viðtökurnar verði eins og fyrri ár, og lofum jafn dásamlegum degi og fyrri ár! Eins og þær konur vita, sem hafa komið, er um að ræða einn dag, að þessu sinni laugardaginn 7.maí, og það kostar ekkert að vera með! En við leggjum mikla áherslu á að konur skrái sig til þátttöku, því einungis eru 125 sæti í boði, og þá er mjög þröngt setinn bekkurinn.
Boðið verður upp á mat og kaffi allan daginn. Og enn og aftur: ÞAÐ KOSTAR EKKERT! Svo ef þú, kæra tólfsporakona, ert að setja auraleysi fyrir þig, ertu þá til í að sleppa því bara og skrá þig? Því við viljum svo gjarnan hafa þig með!

Endilega sendu okkur línu ef þú vilt vita meira, eða ert ekki viss hvort þetta sé fyrir þig! Við svörum öllum póstum! 

Eins og á síðasta ári, verður ráðstefnan haldin í félags aðstöðunni í Alanó-klúbbnum á Héðinsgötu 1-3. Húsið opnar klukkan 8:30 með kaffi og léttum veitingum, og ráðstefnan hefst stundvíslega klukkan 9:30. Skráðu þig sem fyrst, svo þú lendir ekki á biðlista!

Meira fljótlega, svo fylgstu með hér!!

04 febrúar 2016

Máttur kvenna 2016

Jæja kæru konur, það er einstaklega gaman að segja frá því að nú er undirbúningur kominn á fullt fyrir Mátt kvenna árið 2016, þriðja árið í röð! Enn er ekki búið að fastnegla yfirskriftina í ár, en þið lesið það fyrst hér, um leið og það er frágengið! Ef þið viljið leggja hönd á plóg, endilega sendið okkur línu á póstfangið okkar: kvennaradstefna@gmail.com
Einnig erum við að ganga frá dagsetningu, hingað til höfum við haldið ráðstefnuna daginn fyrir mæðradag, og við viljum halda því svo í ár er dagurinn okkar sjöundi maí. Svo endilega takið daginn frá kæru konur! 

Fleiri fréttir fljótlega...