07 maí 2015

Nú er að koma að þessu kæru konur!

Nú líður senn að ráðstefnu okkar, Mætti kvenna, þann 9. maí næstkomandi. Við í undirbúningsnefnd erum þakklátar fyrir þær góðu móttökur sem ráðstefnan hefur fengið. Við höfum fengið til liðs við okkur dásamlegar konur sem ætla að deila reynslu sinni með okkur öllum.

Við erum hreinlega að springa af tilhlökkun og spenningi, og vitum að dagurinn verður dásamlegur, því þið allar sem komið, gerið þetta að veruleika!

Dagskrá dagsins er nú frágengin og verður eftirfarandi:

8:30 Húsið opnar. Kaffi á könnunni og bakkelsi

9:30 Ráðstefnan sett

9:45 Speaker: Alda

10:45 Speaker: Edda

11:30 Q&A - Spurt og svarað: Spurningar til speakera í hálftíma.

12:00 Hádegishlé – súpa og brauð

13:00 Dagskrá hefst á ný

13:15 Speaker: Soffía

14:15 Speaker: Svala

15:00 Kaffihlé og léttar veitingar

15:30 Q&A - Spurt og svarað: Spurningar til speakera í hálftíma.

16:00 Spjall, kósítími og happdrætti!

16:30 Ráðstefnuslit

Ef þú hefur áhuga á að leggja hönd á plóginn, þ.e. vera í þjónustu á ráðstefnunni, þætti okkur vænt um að fá tölvupóst (netfang okkar er kvennaradstefna@gmail.com) eða símtal frá þér í síma 783-4585. Margar hendur vinna létt verk!

Við viljum líka minna á, að þó aðgangur að ráðstefnunni sé ókeypis, þá verður hún ekki að veruleika án tilkostnaðar og mikillar vinnu. Því verður pottur látinn ganga og við höfum auk þess aðgang að posa. Það er mikilvægt að byggja upp ráðstefnuna og festa hana í sessi til framtíðar.

Hlökkum til að sjá ykkur á laugardagsmorgun!

Undirbúningsnefndin
Máttur kvenna, kvennaráðstefna
9. maí 2015

29 mars 2015

Máttur kvenna 2015

Kæru konur! Eru ekki allar orðnar spenntar fyrir ráðstefnunni þetta árið??

Nú er undirbúningsvinna í fullum gangi fyrir ráðstefnuna okkar, en í ár verður hún haldin í Alanó klúbbnum, þann 9.maí næstkomandi, og eins og í fyrra hefjum við leik eldsnemma að morgni laugardags og leikum við fallegar konur allan daginn.

Spíkerar eru að verða klárir, happdrættisvinningarnir hrúgast inn, og gleðin er taumlaus! Að venju leggjum við mikla áherslu á að konur skrái sig til leiks, þó skráningargjald sé ekkert. Hægt er að senda póst á kvennaradstefna@gmail.com með nafni, símanúmeri, fjölda sæta og ekki er verra að fá uppgefinn edrú-dag, ef viðkomandi vill deila honum. Með edrú-degi eigum við að sjálfsögðu við daginn sem bataferlið hefst hjá viðkomandi konu, hvort sem hún er alkóhólisti eða í einhverjum öðrum tólf spora samtökum! Enda er þetta ráðstefna ætluð konum í tólf spora samtökum, hverju nafni sem þau nefnast!

Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er Litlu Sigrarnir. Ef þið viljið leggja hönd á plóg, eða koma einhverju á framfæri við undirbúningshóp, endilega sendið okkur línu! Einnig ef þið viljið koma í þjónustu á ráðstefnudegi, þá eru allar hendur vel þegnar! Tölvupósturinn er enn og aftur: kvennaradstefna@gmail.com.
Við bendum líka á að sætafjöldi er takmarkaður, og fyrstar koma, fyrstar fá. Biðlisti verður settur upp, ef þátttaka fer fram yfir sætafjölda.

Og auðvitað má deila á samfélagsmiðlum, og hlekkja þá við þessa síðu, þar sem við höldum fast í að hafa ekki viðburð á facebook eða öðrum samfélagsmiðlum, sökum nafnleyndar.

Hlökkum til að sjá ykkur allar níunda maí!!

Kærleikskveðja,
undirbúningshópurinn.