Kæru konur! Eru ekki allar orðnar spenntar fyrir ráðstefnunni þetta árið??
Nú er undirbúningsvinna í fullum gangi fyrir ráðstefnuna okkar, en í ár verður hún haldin í Alanó klúbbnum, þann 9.maí næstkomandi, og eins og í fyrra hefjum við leik eldsnemma að morgni laugardags og leikum við fallegar konur allan daginn.
Spíkerar eru að verða klárir, happdrættisvinningarnir hrúgast inn, og gleðin er taumlaus! Að venju leggjum við mikla áherslu á að konur skrái sig til leiks, þó skráningargjald sé ekkert. Hægt er að senda póst á kvennaradstefna@gmail.com með nafni, símanúmeri, fjölda sæta og ekki er verra að fá uppgefinn edrú-dag, ef viðkomandi vill deila honum. Með edrú-degi eigum við að sjálfsögðu við daginn sem bataferlið hefst hjá viðkomandi konu, hvort sem hún er alkóhólisti eða í einhverjum öðrum tólf spora samtökum! Enda er þetta ráðstefna ætluð konum í tólf spora samtökum, hverju nafni sem þau nefnast!
Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er Litlu Sigrarnir. Ef þið viljið leggja hönd á plóg, eða koma einhverju á framfæri við undirbúningshóp, endilega sendið okkur línu! Einnig ef þið viljið koma í þjónustu á ráðstefnudegi, þá eru allar hendur vel þegnar! Tölvupósturinn er enn og aftur: kvennaradstefna@gmail.com.
Við bendum líka á að sætafjöldi er takmarkaður, og fyrstar koma, fyrstar fá. Biðlisti verður settur upp, ef þátttaka fer fram yfir sætafjölda.
Og auðvitað má deila á samfélagsmiðlum, og hlekkja þá við þessa síðu, þar sem við höldum fast í að hafa ekki viðburð á facebook eða öðrum samfélagsmiðlum, sökum nafnleyndar.
Hlökkum til að sjá ykkur allar níunda maí!!
Kærleikskveðja,
undirbúningshópurinn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli
Ath: Aðeins meðlimir bloggsins geta birt ummæli.