06 apríl 2014

Taktu frá 17. maí næstkomandi.

Þann 17. maí næstkomandi, verður haldin ráðstefna fyrir konur í AA, sem nefnist Máttur Kvenna. Undirtitillinn í ár er Sjálfsmynd og sjálfsvirðing.

Langar þig að koma og verja deginum á uppbyggilegan hátt, hlusta á flottar konur og tala við fullt af öðrum flottum konum?

Í boði eru 125 sæti, og við leggjum áherslu á að þú skráir þig gegnum tölvupóstfangið kvennaradstefna@gmail.com, eða hringir í síma 783-4585, svo við getum haldið utan um hvað margar konur koma, og getum haft nægar veitingar fyrir allar þessar fallegu konur!

Ráðstefnan kostar ekkert, en í anda 7. erfðavenjunnar verður pottur.

Ráðstefnan verður haldin í Stangarhyl, húsnæði Samhjálpar.

Við hlökkum til að heyra frá þér, og sjá þig 17.maí!



Dagskrá ráðstefnunnar er eftirfarandi:



Húsið opnar kl. 9:00 til þess að gestir geti mætt og spjallað, fengið kaffi

9:30 ráðstefna sett

9:45 fyrsti speaker

10:45 annar speaker

11:30 Q&A - spurningar til speakera (hálftími)

12:00 hádegishlé

13:00 þriðji speaker

14:00 fjórði speaker

14:45 kaffihlé

15:15 Q&A - spurningar til speakera (hálftími)

Tími til 16:30 í happdrætti og spjall

Engin ummæli:

Skrifa ummæli

Ath: Aðeins meðlimir bloggsins geta birt ummæli.